_
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
13.10.2006 01:28:58 / Magg

Mikið af litlu

Fannst þetta svolítið fyndið í gær:)

Tveir létust er einshreyflis flugvél rakst á háhýsi í New York

Yfirvöld í New York segja að tveir hafi látist þegar einshreyfils flugvél var flogið á háhýsi í New York í kvöld að íslenskum tíma. Fregnir um að fjórir hefðu látist voru bornar til baka.

Ég var virkilega að spá í því klukkan hvað þetta hefði gerst, bara svona tékka hvað var ég t.d. að gera þegar lítil flugvél krassaði á hús í NY. En nei nei þetta gerðist bara á íslenskum tíma:) heheheh (um kvöldið þó) :)

Já svo sá ég þetta líka, því ég er svo mikill fréttafíkill:)

Skóli Amish-fólksins í Nickel Mines rifinn

Skóli Amish-fólksins í Nickel Mines í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum, hefur verið jafnaður við jörðu en fimm skólastúlkur voru skotnar til bana í skólanum þann 2. október og fimm liggja enn slasaðar á sjúkrahúsi eftir árás mjólkurbílstjóra sem réðst inn í skólann. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.

Skólinn var rifinn eftir að íbúar bæjarins ákváðu að leyfa „friðnum að ríkja á staðnum” og hefur grasfræjum þegar verið sáð yfir staðinn þar sem skólinn stóð. Þá mun standa til að útbúa þar lítinn lund til minningar um stúlkurnar.

Rólegir amish-ar að rífa bara skólann!

Ótrúlega skemmtilegt blogg, ég veit það:)

 




» 0 hafa sagt sína skoðun

27.09.2006 01:18:40 / Magg

Reality tékk:)

 Hún er nú alveg ótrúlega sæt og grönn og það er líka svo cool að vera með anorexíu og búlimíu en tékk át the face!! Hún er eiginlega bara eins og vaxdúkka í vaxmyndasafinu í London!

Æ Jess, ekki vera í hvítum brjóstahaldara í svona svörtum bol, sést alltaf þegar flassið kemur, bjóst kannski ekki við því að vera mynduð þennan dag þegar þú fórst út??

Ein góð að láta ná mynd af sér að kjamsa á burger:) Sniðug, umm ég er bara svöng:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 20:06:04 / Magg

H

Jæja ég ætla ekkert að vera að afsaka bloggleysið eins og sumir gera. Það skiptir bara engu máli hvort maður skrifi hér eða ekki:) Ekki eins og fólk sé í áskrift hér:) hehe.

Rakst bara á eitt sem ég nauðsynlega varð að deila með ykkur hér:) Fór í world class áðan á alveg háanna tíma um 17:00-18:00 ca og jú alveg milljón manns þarna og allir á fullu. Kom ekki ein skvísa þarna og fór á skíða vélina og allt í lagi með það nema hvað að hún var með námshefti með sér og glósupenna. Ég gat ekki annað en glott smá að þessu. Jújú það getur vel verið að sumir geti gert marga hluti í einu. Ég allavegana bara hugsa alltaf um það að fara í ræktina sem það að fá útrás og taka vel á því og hlusta á klikkaða tónlist um leið!!:) Þetta var bara eitthvað svo gerfilegt:) hehehe

Ekki meir í dag- H -


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 22:51:33 / Magg

Hamti dúdí hamm

Jújú nú er ég búin að vera veik í rúma viku og alveg orðin kolrugluð af þessu öllu saman:) Eitthvað var ég að baksa í dag og fattaði þá eitt alveg frábært, að ef Íbúfen er lesið afturábak þá fær maður úr Nefúði!! Þetta fannst mér frábærlega fyndið og sagði öllum sem ég hitti í dag frá þessu:) Steikt ég veit:)

Takk íbúfen dollan sem ég á, gjörsamlega made my day:) djók


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 16:16:06 / Magg

Skrítið..

Ástralski umhverfissinninn og sjónvarpsmaðurinn Steve Irwin, sem þekktur var víða um heim undir gælunafninu Krókódílaveiðarinn, lést í dag eftir að gaddaskata stakk hann þar sem hann var við köfun, að því er lögreglan í Queensland í Ástralíu tilkynnti.

Irwin gerði fjölda náttúrulífsmynda og sjónvarpsþættina The Crocodile Hunter. Er hann lést var hann ásamt kvikmyndatökuliði við gerð neðansjávarmyndar.

Voðalega er þetta nú leiðinlegt, svo gaman að þáttunum hans og svo hélt ég líka að hann væri ódauðlegur...


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.09.2006 13:06:25 / Magg

nononononononononononononononononononononononononononononononono

Mikið óskaplega er leiðinlegt að búa nálægt einhverjum sem á trommusett!! Ójá, og er stundum með hljómsveitaræfingu þegar þú þarft að vakna snemma daginn eftir. Þetta er nú ekkert mikið vandamál en stundum pirrandi að geta ekki verið með opna gluggana, ég meina hver spilar á trommur á sunnudegi kl.13?? hver á yfir höfuð trommusett??

Eitt sem ég verð að koma að hérna líka og eru sannarlega orð í tíma töluð!! Ég þoli ekki systir bróðir móðir faðir stafsetningarvilluna!!! Ætlar fólk aldrei að læra!!! Þetta er ekki flókið en samt sér maður þetta úti um allt!! eða kannski greinilega bara ég:) Ég fór til systir minnar, kolrangt fór til systur minnar. Þetta er ekki flókið og þessi frænda orð beygjast öll eins. Systir um systUR frá systUR til systUR. Já þar hafiði það!!

Ég er núna búin að vera með stanslausan hausverk í 4 daga og öll milligrömmin af íbúfeninu sem ég tek virka ekki neitt og svo ætlar hitinn ekki að fara!!!:( Mig sem langaði svo í heimsókn í Álverið í Straumsvík í dag!! Svekk.  

kv.pirri:(


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 23:06:35 / Magg

Iðnaðarmaðurinn

Já frá því kl.13 í dag hef ég verið í starfi iðnaðarmannsins heima hjá mér! Ég ásamt pabba og jóni-alvöru iðnaðarmanninum erum búin að rífa niður heilt baðherbergi(uppi). Eða sko hann að rífa allt niður og við pabbi að taka múrinn og flísarnar og draslið og fara með út í kerru og svo á sorpu, 3 ferðir farnar í dag þangað. Verð að segja það að þetta var helvíti erfitt enda bar ég allt niður stigann!! Svo var þrifið allt hátt og lágt, suss rykið og draslið, en svona verður þetta víst næstu mánuðina held ég, vonandi tekur þetta samt ekki langan tíma. En starf iðnaðarmannsins er mjög erfitt, við papsi allavegana búin á því og rúmlega það!!!

Jæja þá er bara að setja sig í stafsetningargírinn en þessa dagana les ég stafsetningaræfingar fyrir Kjarra minn sem fer í inntökuprófið á fimmtudaginn, omg!! Held að ég sé samt stressaðari en hann!! heheh :) Gaman að þessu,

Nýi vinnumaðurinn er hverflyndur og hyskinn. Ég skyldi þýða bókina ef ég skildi ensku til hlítar. Í fyrndinni trúðu menn þeirri firru að álfkonur seiddu menn til sín og færu með þá í ókleifa hamra. Hún gaf í skyn að mig brysti dirfsku til þess að gista á Kili. Ég sá heiðan himin gægjast fram milli skýjanna eldsnemma um morguninn.

Jújú líf og fjör:) hehhehehehehe, kv.Helgs


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 01:23:51 / Magg

Jáhá

Jáhá þar hafiði það, myndirnar af Lindsay Lohan í Elle September 2006:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 23:41:09 / Magg

Fasteignasalar

Já þeir geta verið fyndir, gera allt til að láta mann kaupa og láta allt líta rosalega vel út, t.d já það er alveg hægt að setja rúm þarna undir súðina = nota bene í plássi þar sem er c.a. einn og hálfur meter til lofts.

"Já barnið á annarri hæðinni er hrætt við hunda" heheheh ooogggg????

"Hæhæ þið komuð og skoðuðuð í gær, eruði búin að melta þetta, viljiði skoða aftur eða ætliði að gera tilboð??" Tja ætla aðeins að hugsa þetta sko...bæææ..:) hehehhe

"Já hringdu svo í mig ÞEGAR ÞÚ VILT SKOÐA AFTUR"  ----Var einhver að tala um að skoða aftur?? Sölutrixin alveg á hreinu hjá þeim!!!

"Já ég er að fara að sýna íbúðina á eftir þannig að ég skal athuga það í leiðinni" xxx úúú það eru fleiri að skoða, vinsæl íbúð, þori að veðja að það var enginn að fara að skoða:)

Já þetta er stuð segi ekki meira:) x- H -x


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 19:24:01 / Magg

:)

Vek athygli á nýrri skoðanakönnun um forljóta skeggið á Loga Bergmann, veit ekki alveg hvað hann er að pæla með þessu??

 

En annars er bara eitt sem ég er að pæla í veit einhver númer hvað serían er af Footballers wifes sem er í gangi núna á stöð 2?? Verð að komast að þessu þar sem ég var beðin um að taka upp 3 þætti fyrir Höbbu,Helenu og Thelmu sem hafa dvalið á Florida, gat tekið upp fyrsta þáttinn heima hjá Kjarra svo eyðinlagðist vídjóið hans og ég ekki með stöð 2 og hvað þá vídjó sem virkar:) Þarf að reyna að fá Kjarra til að dánlóda þessu fyrir kellurnar, svo endilega ef einhver veit, commentið þá:)

Takks:) H


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 11:50:26 / Magg

Góðverk

Jæja jæja, svaf í 12 tíma í nótt!! Hefði sennilega sofið lengur nema að ég ákvað að vakna bara þegar Kjarri fór í vinnuna kl:10:30. Sennilega uppsöfnuð þreyta eftir að hafa farið í ræktina tvo morgna í röð fyrir vinnu kl:06:)

En ég verð nú að segja frá einu góðverki sem ég gerði í gær, ég er auðvitað gerandi góðverk alla daga:) En ég semsakt hrósaði afleysingar ræstitækninum í vinnunni fyrir það hversu vel hann væri að þrífa hjá okkur. Hann var svo ótrúlega ánægur að heyra þetta, það bara fór ekki af honum brosið það sem eftir var.:)

Já við ættum svo sannarlega að gera meira í því að hrósa öðrum:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 22:20:37 / Magg

Fun fun

Jájá kannski ekki alveg búið að vera svona mikið stuð hjá mér í dag líkt og hjá þeim félögum hér að ofan:) en næstum því hehehe

En vá hvað ég er búin að gera mikið í dag!!!!! Vaknaði við sms frá bankanum- búin að fá útborgað, jess gaman. Eyða eyða djók, meira svona spara spara.

  • Allavegana ég svaf út og rúmlega það.
  • Fór í ræktina með Kjarra (þar sem það var svo gott veður dró Kjarri mig út að hlaupa, þrátt fyrir nokkur hnémeiðsl gat ég ekki neitað svo góðu boði um líkamrækt samtvinnaða við útivist svo að við hlupum.
  • Við tókum inntökuprófið og náðum því auðvitað með miklum glæsibrag.
  • Fórum í sund:)
  • Fórum svo út að borða:)
  • Kjarri fór að vinna og ég fór heim og tanaðist í garðinum í sólbaði í næstum tvo tíma!!!
  • Ég drap a.m.k. 5 risa köngulær (til að varnast því að þær eignist börn í garðinum mínum í náinni framtíð)
  • Ég sló allan garðinn minn og rakaði hann og sló fótboltavallar munstur í part af honum. (garðyrkjumaðurinn gone wild!!)
  • Ég staðfesti grun minn þess efnis að það er geitungabú bak við hlaðnar hellusteina í garðinum mínum. (Reyndi að ná nokkrum í slátturvélina þrátt fyrir að mamma hefði sagt mér að vara mig á þeim þar sem geitungarnir kallast líklega holugeitungar og eru þeir þekktir fyrir að vera ansi agressívir) Held ég hafi ekki verið stungin. 
  • Ég spúlaði stéttina- allan jólasnjóinn í burtu:)!!
  • Þvoði tvær þvottavélar og straujaði 2 skyrtur!
  • Hringdi í Bryndísi kl:21:30 og hún var sofnuð- áttaði mig bara ekki á tímamismuninum á Reyðarfirði (hún vaknar kl:04:30 og byrjar vinnudaginn þá!)
  • Held ég fari að slappa af núna með pops og kók:) 

En Bryndís mín, vona að þú lesir þetta í fyrramálið. Þetta var nú ekkert kurteisis símtal, viltu vera með mér hér í heimasíðunni. Væri mér mikill heiður:) hehh getur skrifað um lífið á Reyðarfirði:) maður veit eiginlega ekkert um þetta. Ok flott ég skrái þig með:)

Maður bara verður að elska svona daga og líka það að vera í vaktavinnu og þá í fríi:)!!!!!! Já svo má ekki gleyma- stefnan er tekin á ræktina kl:06 í fyrramálið fyrir vinnu:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2006 18:01:45 / Magg

Sumarblómin dauð

Held að það sé alveg ágætis merki um lífið á þessu landi hérna núna þegar fallegu sumarblómin mín eru öll dauð!! Ja nema 2 bleik:) Það er allt farið á annan endann hérna og blómin hafa bara ákveðið að kveðja þetta líf fyrir snjókomuna miklu sem er í gangi þessa dagana. Mætti halda að þetta væri hús jólasveinsins, en það er kvenkyns öspin okkar góða sem framkallar gervisnjóinn sem er hér úti um allt. Pabbi fór út um daginn og ryksugaði eitthvað upp, frekar leið yfir því að hafa misst af því, hefur örugglega verið hrikalega fyndið!! :) Það er hvít jörð hjá okkur og minnir mann bara á jólin sem nálgast, djók.

Svo fór auðvitað allt á flot eins og kannski einhverjir vita:) og ástandið er víst ekkert að fara að lagast þar sem á að fara að brjóta allt niður hérna eftir örfáa daga, veit ekki hvar þetta endar. Ég er allavegana farin að þrífa bílinn minn góða veitir víst ekki af því;) H


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 00:02:36 / Magg

Magnakvöld

Við Kjarri skelltum okkur í gær í smá heimsókn til Helenu og Gunna í nýja-ásinum til að kveðja þau, boðuðum komu okkar með smá símtali, ætluðum bara rétt að kíkja á þau en svo þegar við komum var búið að framreiða þvílíku veitingarnar að við vissum varla hvað var í gangi. Þannig að við ílengdumst heldur betur og þetta breyttist í brjálað Magnakvöld langt fram á nótt:)

Nú eru Helena og Gunni hins vegar flogin út til Florida með the Snorri family:)

Á morgun er það svo road trip með Maju á morgun, farið veður á 1-2-Selfoss að heimsækja Villu:) gaman gaman, get ekki beðið:)

Heyrumst:) H


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 17:50:38 / Magg

Gaman saman

Undanfarnir dagar eru búnir að vera ótrúlega ljúfir og góðir:) Við BRYNDÍS, Helena og Heiðrún fórum í bláa lónið á fimmtudaginn og flatmöguðum í sólinni allan daginn!!

Alveg himneskt! Föstudeginum varði ég í garðinum hjá mér, maximum tan fílíngur þar á ferðinni. Svo um kvöldið fórum við pæjurnar út að borða á rossopommodoro og ég verð bara að segja það hef farið þarna 2 áður og einu sinni fékk ég ótrúlega vondan mat og í hitt skiptið með stelpunum var þjónustan SLÆM, ókurteis þjónustustúlkan. Ákváðum að prufa þetta í síðasta skipti og maturinn var ágætur, en þjónustan slæm, eða bara það var engin þjónusta þarna, svo einfalt var það nú:)!! Svo skelltum við okkur í Borgarleikhúsið á Footloose sem var gaman, Þorvaldur vinur okkar alveg að slá í gegn þarna!! Svo kíktum við í bæinn og tókum nett djamm á þetta:)

Eitt að lokum, nýjasti diskurinn með Nelly Furtado er frábær, alveg að fíla hann!!!! Hann er svo góður í ræktinni og í sólbaðinu og bara alls staðar;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5